Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 17. september 2019 21:37
Ívan Guðjón Baldursson
Átti Napoli að fá vítaspyrnu gegn Liverpool?
Mynd: Getty Images
Napoli var rétt í þessu að sigrast á Liverpool í fyrstu umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar, 2-0.

Napoli tók forystuna á lokakafla leiksins þegar Dries Mertens skoraði úr afar umdeildri vítaspyrnu.

Andy Robertson kom knettinum úr vítateig Liverpool og henti Jose Callejon sér til jarðar. Endursýningin sýnir snertingu sem virðist þó eiga sér stað eftir að Callejon hoppar upp.

Hægt er að sjá myndband af atvikinu með að smella hér eða hér.

Liverpool tapaði einnig fyrir Napoli í fyrra en endaði svo á að vinna keppnina.
Athugasemdir
banner
banner
banner