Fotbolti.net
17.09.25 - 18:22
Anton Freyr Jónsson

Byrjunarlið HK og Þróttar: Liam Daði byrjar á bekknum

Liam Daði byrjar á bekknum í kvöld

Liam Daði byrjar á bekknum í kvöld

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin

HK tekur á móti Þrótti Reykjavík í  fyrri leik liðanna í umspili Lengjudeildarinnar um sæti í Bestu deildinni. Þetta eru liðin sem enduðu í þriðja og fjórða sæti í Lengjudeildinni í sumar. Helgi Mikael Jónasson flautar til leiks í Kórnum klukkan 19:15.

HK endaði deildina í fjórða sæti á meðan Þróttur endaði í því þriðja. HK silgdi nokkuð örugglega inn í umspilið á meðan Þróttarar voru í færi á að fara beint upp en liðið tapaði á móti Þór í hreinum úrslitaleik um beinan farseðil í Bestu deildina að ári. 

Lestu um leikinn: HK 4 - 3 Þróttur R.

Hermann Hreiðarsson þjálfari HK gerir eina breytingu á sínu liði frá sigrinum gegn Völsung í lokaumferð deildarinnar. Brynjar Snær Pálsson er í leikbanni í kvöld og Aron Kristófer Lárusson kemur inn í hans stað. 

Sigurvin Ólafsson þjálfari Þróttar gerir þrjár breytingar á sínu liði frá tapinu gegn Þór. Kolbeinn Nói Guðbergsson, Viktor Steinarsson og Viktor Andri Hafþórsson koma allir inn í liðin. Liam Daði Jeffs byrjar á bekknum hjá Þrótti í kvöld. Kári Kristjánsson og Njörður Þórhallsson eru báðir í leikbanni og þá er Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson einnig í leikbanni í kvöld. 

Byrjunarlið HK

  • 1. Ólafur Örn Ásgeirsson (m)
  • 4. Aron Kristófer Lárusson
  • 5. Þorsteinn Aron Antonsson
  • 6. Þorvaldur Smári Jónsson
  • 7. Dagur Ingi Axelsson
  • 16. Eiður Atli Rúnarsson
  • 21. Ívar Örn Jónsson
  • 22. Haukur Leifur Eiríksson
  • 24. Magnús Arnar Pétursson
  • 28. Tumi Þorvarsson
  • 88. Bart Kooistra

Byrjunarlið Þróttur R.

  • 1. Þórhallur Ísak Guðmundsson (m)
  • 2. Eiríkur Þorsteinsson Blöndal
  • 7. Hrafn Tómasson
  • 8. Baldur Hannes Stefánsson (f)
  • 9. Viktor Andri Hafþórsson
  • 14. Kolbeinn Nói Guðbergsson
  • 20. Viktor Steinarsson
  • 21. Brynjar Gautur Harðarson
  • 25. Hlynur Þórhallsson
  • 32. Aron Snær Ingason
  • 33. Unnar Steinn Ingvarsson
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.