Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 17. október 2020 13:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið Chelsea og Southampton: Kepa og Walcott byrja - Ziyech á bekk
Mynd: Getty Images
Chelsea tekur á móti Southampton klukkan 14:00 á Stamford Bridge. Leikurinn er annar leikur dagsins í ensku úrvalsdeildinni og er í beinni útsendingu á Síminn Sport.

Chelsea er með sjö stig eftir fyrstu fjóra leikina og Southampton er með sex stig. Chelsea vann Crystal Palace í síðustu umferð og gestirnir unnu WBA.

Kepa Arrizabalaga stendur á milli stanga Chelsea þar sem Edouard Mendy er meiddur. Þá er Hakim Ziyech á bekknum og gæti leikið sinn fyrsta leik fyrir Chelsea. Thiago Silva er ekki í leikmannahópi Chelsea.

Hjá Southampton er Theo Walcott í byrjunarliðinu en hann gekk í raðir uppeldisfélagsins frá Everton á dögunum.

Byrjunarlið Chelsea: Kepa, Azpilicueta, Christensen, Zouma, Chilwell, Jorginho, Mount, Kante, Havertz, Pulisic, Werner.

(Varamenn: Caballero, Tomori, James, Hudson-Odoi, Ziyech, Abraham, Giroud.)

Byrjunarlið Southampton: McCarthy, Walker-Peters, Vestergaard, Bednarek, Bertrand, Romeu, Ward-Prowse, Walcott, Redmond, Ings, Adams.

(Varamenn: Forster, Tella, Valery, Stephens, Diallo, Obafemi, Long.)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner