Gaz Metan vann 2-1 sigur gegn Dinamo Búkarest síðastliðið föstudagskvöld.
Það og eitt og sér er ekki mikið fréttaefni á Íslandi. Það gerðust hins vegar ótrúlegir hlutir undir lok fyrri hálfleiksins þegar heimamenn komust í 2-0.
Ronaldo Deaconu, leikmaður Gaz Metan, stóð heldur betur undir nafni.
Hann skoraði tvö gullfalleg mörk á innan við tveimur mínútum. Algjörlega magnað.
Þessi tvö mörk dugðu til sigurs. Dinamo Búkarest minnkaði muninn í seinni hálfleiknum en komst ekki lengra. Þessi mörk má sjá í myndbandinu fyrir neðan. Sjón er sögu ríkari.
Athugasemdir