Aaron Ramsey, leikmaður Juventus, rændi aukaspyrnumarki af Cristiano Ronaldo er liðið mætti Lokomotiv Moskvu í Meistaradeildinni í byrjun nóvember en Ronaldo gerði svipað í 2-0 sigri gegn Lúxemborg í dag.
Ronaldo hafði ekki skorað úr aukaspyrnu í 28 tilraunum fyrir Juventus er liðið fékk aukaspyrnu gegn rússneska liðinu en tölfræðin er mikið rædd í ítölskum miðlum.
Markvörður Lokomotiv átti í vandræðum með spyrnu Ronaldo í leiknum sem varð til þess að boltinn var að leka inn í markið áður en Ramsey var mættur til að pota honum yfir línuna.
Ronaldo var ekkert sérstaklega hrifinn en hann gerði slíkt hið sama gegn Lúxemborg í dag. Diego Jota átti þá skot undir lok leiks og var boltinn að fara yfir línuna er Ronaldo mætti til að pota honum inn.
Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.
Ronaldo’s do a “Ramse” and make 99 goals for Portugal!
— Ronaldo CR7 -The Juve version (@Mr_Baggio) November 17, 2019
Can he make 100 already today? #EURO2020 @Cristiano pic.twitter.com/Tdq74vXQp6
Athugasemdir