Chelsea tilbúið að selja Enzo - Man Utd vill Gomes - Anderson og Wharton líka á óskalista United
   lau 18. janúar 2020 16:05
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Immobile með þrennu gegn Sampdoria
Búinn að skora 23 mörk eftir 19 umferðir
Lazio 5 - 1 Sampdoria
1-0 Felipe Caicedo ('7)
2-0 Ciro Immobile ('17, víti)
3-0 Ciro Immobile ('20)
4-0 Bastos ('54)
5-0 Ciro Immobile ('65, víti)
5-1 Karol Linetty ('70)
Rautt spjald: Julian Chabot, Samp ('74)

Lazio tók Sampdoria í kennslustund er liðin mættust í fyrsta leik helgarinnar í ítalska boltanum.

Felipe Caicedo skoraði snemma leiks og tvöfaldaði Ciro Immobile forystuna með marki úr vítaspyrnu tíu mínútum síðar.

Immobile, sem er markahæstur í Serie A, bætti þriðja markinu við á 20. mínútu og var staðan 3-0 í hálfleik.

Varnarmaðurinn Bastos gerði fjórða markið eftir stoðsendingu frá Lucas Leiva og fullkomnaði Immobile þrennuna sína með marki úr vítaspyrnu á 65. mínútu.

Karol Linetty minnkaði muninn fyrir gestina en skömmu síðar fékk Julian Chabot beint rautt spjald fyrir brot sem aftasti varnarmaður.

Meira var ekki skorað og er ellefti deildarsigur Lazio í röð staðreynd.

Lazio er í þriðja sæti, þremur stigum frá toppliði Juventus. Sampdoria er fimm stigum fyrir ofan fallsvæðið, með 19 stig eftir 20 umferðir.

Immobile er búinn að skora 23 mörk í 19 deildarleikjum á tímabilinu, níu mörkum meira en Romelu Lukaku og Cristiano Ronaldo sem eru næstmarkahæstir.
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 21 16 1 4 44 17 +27 49
2 Milan 21 13 7 1 34 16 +18 46
3 Napoli 21 13 4 4 31 17 +14 43
4 Roma 21 14 0 7 26 12 +14 42
5 Juventus 21 11 6 4 32 17 +15 39
6 Como 20 9 7 4 28 16 +12 34
7 Atalanta 21 8 8 5 26 20 +6 32
8 Bologna 21 8 6 7 30 24 +6 30
9 Lazio 20 7 7 6 21 16 +5 28
10 Udinese 21 7 5 9 22 33 -11 26
11 Sassuolo 21 6 5 10 23 28 -5 23
12 Parma 21 5 8 8 14 22 -8 23
13 Cremonese 21 5 8 8 20 28 -8 23
14 Torino 21 6 5 10 21 34 -13 23
15 Cagliari 21 5 7 9 22 30 -8 22
16 Genoa 21 4 8 9 22 29 -7 20
17 Fiorentina 21 3 8 10 23 32 -9 17
18 Lecce 21 4 5 12 13 29 -16 17
19 Pisa 21 1 11 9 16 31 -15 14
20 Verona 21 2 8 11 17 34 -17 14
Athugasemdir
banner
banner