Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
Glódís eftir sögulegan leik: Veit það nú ekki alveg
Karólína Lea: Ég er eins og einhver stolt mamma þegar ég sé hana
Linda Líf eftir fraumraunina: Geggjað að fyrsti landsleikurinn hafi verið sigur
Cecilía: Ég er vön þessu stundum úti
Thelma Karen: Vantaði helminginn af vinkonunum
Alexandra: Alltaf gaman í þau fáu skipti sem það gerist
Steini vonsvikinn: Þetta er að gerast annars staðar
Sandra María: Hún getur allt sem hún vill
Sterkastur í 1. umferð - Þetta var erfiður leikur maður
Sigurjón Rúnars: Tíu mínútna kafli sem við slökktum á okkur
Lárus Orri: Markús Páll og Viktor Jóns ná vel saman
Markús Páll: Alltaf gaman að skora, af hverju ekki að fagna?
Rúnar Kristins: Hafði ekki hugmynd um að Markús Páll væri á leiðinni til Íslands
Jökull: Það var bara óþarfi
Hetja Þórsara gegn Val: Búinn að bíða helvíti lengi eftir því að koma inn á
Haddi: Mjög svekkjandi það sem ég heyri
Siggi um ummæli Hemma: Hann má alveg halda það
Halli Gumm: Sex mínútur eftir - Þurfum að geta haldið þetta út
Hemmi eftir tap gegn Þór: Stjórnuðum leiknum frá A til Ö
Sextán ára hetja KR - „Er það ekki sem fólkið vill?“
   mið 18. febrúar 2026 17:30
Kári Snorrason
Laugarneskirkja
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Davíð hefur verið stuðningsmaður Forest í tæplega hálfa öld.
Davíð hefur verið stuðningsmaður Forest í tæplega hálfa öld.
Mynd: Samsett mynd
Vitor Pereira er tekinn við liðinu.
Vitor Pereira er tekinn við liðinu.
Mynd: EPA
Forest er þremur stigum frá fallsæti.
Forest er þremur stigum frá fallsæti.
Mynd: EPA
Evangelos Marinakis er mikill karakter.
Evangelos Marinakis er mikill karakter.
Mynd: EPA
Mikið hefur gengið á í Skírisskógi undanfarin misseri en liðið lét Sean Dyche nýverið fara og réði Vitor Pereira í hans stað. Pereira verður fjórði stjórinn sem stýrir liðinu á einu og sama tímabilinu.

Liðið situr um þessar mundir í 17. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, þremur stigum frá fallsæti. Séra Davíð Þór Jónsson, sóknarprestur í Laugarneskirkju, er mikill stuðningsmaður Nottingham Forest.

Fótbolti.net gerði sér leið í Laugarneskirkju og ræddi við Davíð um gang mála í Nottingham.

Fjórir stjórar á einu og sama tímabilinu
„Það er búið að vera vandræðalegt að fylgjast með þeim, eins fær og maður hefur verið að fylgjast með. En ég trúi því að það séu betri tímar framundan eftir þessar síðustu vendingar,“ segir Davíð.

Fjórir stjórar á sama tímabili, er það ekki fullmikið?
„Það er auðvitað alltof mikið. Það er bara brandari og stórhættulegt. Við verðum að horfast í augu við það að markmiðið er að falla ekki. Það eru auðvitað vonbrigði.“

Liðið hefur látið þá Nuno Espirito Santo, Ange Postecouglo og nú síðast Sean Dyche alla fara á fimm mánuðum.

„Edu var á bakvið ósættið sem leiddi til brottreksturs Nuno Espirito Santo. Síðan veit ég ekki hvað þeir voru að spá með ráðninguna á Ange Postecouglu. Hann var kolvitlaus maður fyrir Forest, hann lét liðið spila bolta sem þeir kunnu ekkert. En nú er Pereira kominn, hann gerði góða hluti með Wolves í fyrra en fór illa af stað í fyrra. Ég vona að hann fari að sýna okkur aftur Forest liðið sem við þekkjum og elskum.“

Davíð segir jafnframt að Edu Gaspar, yfirmaður fótboltamála hjá Nottingham Forest, hafi verið látinn fara en þar fer hann með rangt mál og er Brasilíumaðurinn enn í starfi.

Hinn umdeildi Marinakis
Evangelos Marinakis, eigandi Nottingham Forest, er einn af stærstu karakterum fótboltans. Hann keypti liðið fyrir um áratug síðan og er að sögn Davíðs vel liðinn í Nottingham.

„Marinakis er karakter. Hann kom eins og himnasending, liðið hafði verið búið að flakka á milli mjög skrítinna eiganda, dularfullir karakterar og menn sem kunnu ekki að eiga fótboltalið. Hvað sem má segja um Marinakis, sem hefur verið bendlaður við ýmislegt, þá kann hann í hið minnsta að eiga fótboltalið. Hann á lið á Grikklandi og víðar. Hann er blóðheitur og skapstór, það er gaman að fylgjast með honum.“

„Hann er mjög vinsæll meðal stuðningsmanna og vinsæll í Nottingham. Maður sér það á þessum helstu síðum að þeir elska hann. Hann áttar sig á mikilvægi þess að félagið hafi góða ímynd í nærsamfélaginu.“

Viðtalið við Davíð má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner