Fotbolti.net
18.03.26 - 13:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Útskýrir af hverju Albert fer ekki til Kanada

Útskýrir af hverju Albert fer ekki til Kanada
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Albert Guðmundsson verður ekki með íslenska landsliðinu í komandi vináttulandsleikjum gegn Kanada og Haítí. Leikirnir verða spilaðir í Ontario í Kanada.

Albert, sem hefur verið lykilmaður í landsliðinu, spilaði ekki í þremur leikjum í febrúar vegna meiðslanna en hefur spilað í síðustu fimm leikjum ítalska liðsins og skorað í síðustu tveimur.

Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson sagði á fréttamannafundi í dag að Albert myndi nýta landsleikjagluggann til að hvílast.
<b>Landsliðshópurinn -</b> Fyrirliðinn snýr aftur ásamt Gylfa en enginn Albert
TENGT EFNI

Landsliðshópurinn - Fyrirliðinn snýr aftur ásamt Gylfa en enginn Albert

„Við áttum gott spjall um helgina, hann hefur verið að ströggla mikið með ökklann á sér. Þetta er leiðinlegt, ég hefði getað valið hann og þá væri hann að missa af tækifæri til að jafna sig almennilega. Hann fer í sprautumeðferð. Stundum er skammtímaávinningur ekki góður, ég hefði getað verið harður (e. criticial) á að velja hann og spila honum, en við töldum langbest í stöðunni að hann myndi ná sér fullkomlega með sprautumeðferðinni. Þannig á hann góðan séns á að enda tímabilið mjög vel fyrir sitt félag sem er hrikalega mikilvægt fyrir hann sjálfan og félagið sem er í bullandi fallbaráttu. Vonandi sjáum við hann aftur í júníverkefninu."

Albert er 28 ára sóknarmaður sem hefur skorað 11 mörk í 42 landsleikjum á sínum ferli.

Arnar: Þurfum að taka doktorsprófið í að verða alvöru lið

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.