Fotbolti.net
18.05.04 - 00:00

Heskey til Birmingham (Staðfest)

Heskey til Birmingham (Staðfest)
Canon
Þá er það staðfest að enski landsliðsframherjinn Emile Heskey er farinn frá Liverpool til Birmingham. Heskey kom til Liverpool í mars árið 2000 fyrir 11. milljónir punda og á sínu fyrsta heila tímabili fyrir liðið skoraði hann 22 mörk. Hann skrifaði undir fimm ára samning við Birmingham sem borgaði 6,25. milljónir punda fyrir hann.
Hann mun reyndar verða Liverpool leikmaður þangað til 1. júlí þegar hann skrifar undir samninginn en hann er búinn að skrifa undir forkaupssamning við Birmingham. Heskey fór í suttt frí til New York áður en hann hittir enska landsliðið en hann sagði þetta við blaðamenn nú í morgun:

"Ég held að Birmingham sé í framför og þeir eru metnaðargjarn klúbbur og eru að fara í rétta átt" sagði Heskey. "En þeir eru einnig að byggja markvisst upp án þess að bruðla mikið með peninga og stofna framtíð klúbbsins í hætttu.

Ég get alveg spilað sem fremsti maður sem ég hef ekki gert síðan á öðru tímabili mínu með Liverpool, og Steve (Bruce) hefur gert mé það ljóst að það verður mitt hlutverk. Ég hlakka líka til að spila við hlið Mikael Forssel. Ég hef verið mjög hrifinn af því sem ég hef séð með honum og ég held að við getum myndað hættulegt sóknarpar."


Steve Bruce stjóri Birmingham var í skýjunum yfir nýja sóknarmanninum: "Þetta eru alveg frábær kaup fyrir félagið" sagði Bruce. "Hann er ennþá aðeins 26 ára, hefur spilað 40 landsleiki fyrir England og mun spila fyrir land sitt á Evrópumótinu í sumar. Að landa þessum kaupum er stórkostlegt og ég er mjög spenntur yfir því að bæta Emile við hópinn fyrir næsta tímabil. Vonandi mun hann verða sá fyrsti af nokkrum stórum kaupum sem við gerum í sumar."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.