Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 18. maí 2022 14:00
Elvar Geir Magnússon
Mun Timber fylgja Ten Hag til Man Utd?
Jurrien Timber.
Jurrien Timber.
Mynd: EPA
Manchester United er sagt vera að smíða tilboð í Jurrien Timber, tvítugan varnarmann Ajax. Hann er metinn á 35 milljónir punda.

Timber hefur tekið miklum framförum undir stjórn Erik ten Hag í Amsterdam og hjápaði honum að vinna sinn þriðja hollenska meistaratitil með Ajax.

Ten Hag vill halda áfram að vinna með Timber hjá Manchester United og hefur einnig áhuga á öðrum varnarmanni Ajax, Argentínumanninum Lisandro Martínez.

Ten Hag mun vinna í að endurbyggja leikmannahóp United og leggur áherslu á að fá sóknarmann, skapandi miðjumann, varnartengilið og miðvörð.

Timber hefur spilað 43 leiki fyrir Ajax á þessu tímabili og getur spilað vel sem bæði miðvörður og hægri bakvörður.
Athugasemdir
banner
banner