Fotbolti.net
18.05.26 - 11:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ferðasaga Óskars Borgþórs: Þetta gekk alls ekki eins og í sögu

Ferðasaga Óskars Borgþórs: Þetta gekk alls ekki eins og í sögu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar Borgþórsson, leikmaður Víkings, var að venju mjög hress þegar Fótbolti.net ræddi við hann í dag. Óskar skoraði fyrra mark Víkings í 0-2 útisigri á ÍBV í gær.
Lestu um leikinn: ÍBV 0 - 2 Víkingur R.
„Úff nei, þetta gekk alls ekki eins og í sögu. Þetta var sex tíma bátur frá Þorlákshöfn, ég persónulega kom alveg ágætlega úr því, tók tvær sjóveikistöflur, sónaði út, varð mjög þreyttur og svaf eiginlega allan tímann. Aðrir sváfu kannski aðeins, en þetta var galið, manni leið mjög skringilega. Bátsferðin heim var mjög þægileg, fórum þá í Landeyjahöfn og sjórinn góður."

„Við æfðum klukkan átta um morguninn í Víkinni og fórum svo af stað í rútu, ég hef aldrei æft svo snemma. Það var mjög næs svo á hótelinu sem við gistum á, þar var sauna og heitir pottar sem við nýttum okkur mjög vel, tókum kalda sturtu og vorum eins og nýir eftir það. Svo bara matur, rólegheit og göngutúr."


Leikurinn gegn ÍBV hófst klukkan 13:00 í gær og í fyrri hálfleik lék Víkingur á móti sterkum vindi.

„Við vorum á móti vindi og þetta er 100% erfiðasti fyrri hálfleikur sem ég hef spilað. Í hálfleik leið mér eins og ég væri búinn að spila 90 mínútur. Hugarfarið var kannski smá að halda hreinu í fyrri hálfleik og svo keyra yfir þá í seinni, en samt ekki. Við vorum alveg að reyna koma inn marki, en náðum ekki alveg að spila boltann okkar."

„Við ræddum um að keyra yfir þá í seinni verandi með vindinn í bakið. Við ætluðum að halda áfram að hamra járnið og það tókst nokkuð vel."


Óskar skoraði svo fyrsta mark leiksins með skalla eftir fyrirgjöf frá Elíasi Má Ómarssyni.

„Ég sá að Elías var í góðri stöðu til að gefa fyrir og bið um boltann. Ég fæ hann háan og tek skallann út við stöng. Kannski var skallinn laus, en ég held án djóks að vindurinn hafi aðeins hjálpað."

„Mér leið allavega ekki illa eftir markið, það var ekkert stress, og tilfinningin var svo mjög góð eftir þetta sturlaða mark frá Gylfa. Þessi gæði í honum... hann var búinn að reikna vindinn og er með þessi gæði að geta hitt markið af þessu færi. Maður sér ekki svona í hverju liði, boltinn lendir á lofti í netinu, það er rosalegt."


Víkingur hefur unnið sex leiki í röð eftir að hafa gert jafntefli gegn Blikum í fyrstu umferð, liðið er komið á topp Bestu deildarinnar og er einnig komið áfram í 8-liða úrslit bikarsins. Óskar hefur skorað fjögur mörk og lagt upp þrjú á tímabilinu.

„Mér líður helvíti vel að vera í Víkingi að spila okkar bolta. Þetta er ógeðslega gaman," segir Óskar að lokum.

Næsti leikur Víkings er heimaleikur gegn FH á föstudag.
'Maður sér ekki svona í hverju liði, boltinn lendir á lofti í netinu, það er rosalegt'

'Maður sér ekki svona í hverju liði, boltinn lendir á lofti í netinu, það er rosalegt'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Mér líður helvíti vel að vera í Víkingi að spila okkar bolta. Þetta er ógeðslega gaman'

'Mér líður helvíti vel að vera í Víkingi að spila okkar bolta. Þetta er ógeðslega gaman'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.22+4653
2Fram22+1445
3KR22+2544
4Breiðablik22+230
5ÍA22-230
6Keflavík22-528
7Stjarnan22-828
8Valur22-627
9FH22-1221
10Þór22-2821
11KA22-1320
12ÍBV22-1318
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.