18.06.04 - 12:46
Magnús Már Einarsson
Purse til WBA (Staðfest)




WBA sem að tryggði sér sæti í ensku úrvalsdeildinni fyrir skömmu hefur keypt Darren Purse frá Birmingham á 750 þúsund pund. Purse sem að er 27 ára varnarmaður hefur skrifað undir þriggja ára samning við WBA eftir að hafa samið um kaup og kjör við félagið og staðist læknisskoðun.
Purse sem að var besti leikmaður Birmingham tímabilið 2000-2001 hefur ekki verið fastamaður að undanförnu og á seinasta tímabili lék hann aðeins tólf leiki með Birmingham.
