Fotbolti.net
18.06.12 - 14:00
Magnús Már Einarsson

Andy Johnson og Ryan Nelsen í QPR (Staðfest)

Andy Johnson.

Andy Johnson.

Canon

Mynd: Getty Images

QPR hefur samið við Andy Johnson og Ryan Nelsen en þeir koma báðir frítt til félagsins.
Hinn 31 árs gamli Johnson kemur frá Fulham en hann hefur skrifað undir tveggja ára samning.

Johnson, sem er 31 árs, mun berjast við Heiðar Helguson um sæti í liðinu hjá QPR sem og Djibril Cisse, Bobby Zamora, DJ Campbell og Jay Bothroyd.

Johnson þekkir Mark Hughes stjóra QPR vel en þeir voru báðir hjá Fulham á sínum tíma.

Nelsen skrifaði undir eins árs samning við QPR en hann lék með Tottenham síðari hlutann á síðasta tímabili eftir að hafa verið fastamaður í vörn Blackburn um áraraðir.

Heimild: Heimasíða QPR

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.