Amorim hleypir Mainoo ekki burt - Tottenham vill Van Hecke og Thiago - Gæti Xavi tekið við Tottenham?
Jóladagatalið: Eiður Smári gekk út úr viðtali
Óþægileg óvissa en gerðist svo hratt - „Þarf að byrja á að virða þetta skref"
Jóladagatalið: Dansaði að hætti Boris Lumbana
Jóladagatalið: Fituprósenta og Framsókn
Jóladagatalið: Vidic er fokking leiðinlegur
Viktor Örn: Sjóaðir í að standa upp við mótlæti
Andri Rafn: Ákveðinn léttir og mikil gleði að ná fyrsta sigrinum
Jóladagatalið: Baldur Sig og lága kvöldsólin
Höskuldur: Við Íslendingar ættum að fara kannast við þetta lið
Aron Snær: Svo hringir bara Kári Árna
Ólafur Ingi: Þá held ég að sigurinn skili sér
Jóladagatalið: Vona að þeir hafi verið á baki en ekki með hann í lúkunum
Jóladagatalið: Hvernig er að ganga í Feneyjum?
Jóladagatalið: Misskildi spurningu fréttamanns - „Setti hársprey og svona“
Jóladagatalið: Hægðir og lægðir
Jóladagatalið: Lárus Orri lét stjórnarmenn heyra það - „Vilja eignast vini upp á KA-svæði“
Jóladagatalið: Langbest að fá heyrnarlausa menn til að dæma leikinn
Jóladagatalið: Cillessen rauk úr viðtali eftir tap á Laugardalsvelli
Jóladagatalið: Gylfi lét boltum rigna yfir Jóa Berg
Aron Einars: Spenntur fyrir Davíð og öllu sem hann stendur fyrir
   fös 18. júní 2021 22:12
Haraldur Örn Haraldsson
Magnús Már: Strákarnir fá credit fyrir að gefast ekki upp
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magnús Már þjálfari Aftureldingar kom í viðtal eftir 3-3 jafntefli Aftureldingar gegn Selfoss á Fagverksvellinum að Varmá fyrr í kvöld.

Mosfellingar komust 2-0 yfir snemma í leiknum en Selfyssingar svöruðu vel og tókst að jafna rétt fyrir hálfleikinn, í seinni hálfleik komu Selfyssingar af miklum krafti og tókst að komast yfir, Aftureldingu tókst þó að jafna undir restina og þar við sat.

Lestu um leikinn: Afturelding 3 -  3 Selfoss

„Mér fannst hann (leikurinn) mjög kaflaskiptur mér fannst við vera með öll tök eins og tölurnar sýndu fyrstu 20 mínúturnar en svo hleypum við þeim inn í leikinn og við rönkuðum ekki við okkur fyrr en staðan var 3-2 fyrir þeim en strákarnir fá credit fyrir að gefast ekki upp og það er það sem við fundum fyrir að gefast aldrei upp þannig það var gott að jafna 3-3 og ef annað liðið átti að vinna undir lokin þá voru það við."

Pedro Vazquez skoraði 2 mörk í leiknum og var Magnús spurður út í hversu sterkur hann er fyrir liðið.

„Bara frábær leikmaður, hentar vel í okkar spil, góður í fótbolta, góður að tengja spil og góðar úrslitasendingar og getur skorað mörk líka eins og hann sýndi í dag, frábært að fá hann inn í hópinn."

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en þar ræðir Magnús meira um leikinn, hvort þeir ætla að gera eeitthvað á markaðnum og vhvernig stigasöfnunin hefur verið í sumar.
Athugasemdir
banner
banner