Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
banner
   mið 18. júní 2025 14:34
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gríðarlegur munur á einum tölfræðiþætti í Reykjavíkurslagnum
Miðverðir KR í leiknum. Hjalti Sigurðsson og Finnur Tómas Pálmason.
Miðverðir KR í leiknum. Hjalti Sigurðsson og Finnur Tómas Pálmason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það vakti athygli í leik Víkings og KR á mánudag hversu oft heimamenn í Víkingi voru rangstæðir í leiknum. Víkingar voru alls dæmdir tólf sinnum rangstæðir í leiknum, fimm sinnum í fyrri hálfleik og sjö sinnum í seinni. Víkingar höfðu fyrir leikinn sextán sinnum verið dæmdir rangstæðir, svo heildafjöldinn var nálægt því að tvöfaldast.

KR spilar yfirleitt hátt með varnarlínuna sína og hefur liðið stundum fengið það í andlitið.

Það er oft stutt á milli, stundum hafa KR-ingar viljað fá flaggið á loft en ekki fengið og stundum hefur það farið á hinn veginn, eins og gengur og gerist, að rangstæða hefur ranglega verið dæmd. Eitt umtalastaða atvik sumarsins er markið sem Vestri skoraði gegn KR en þá fór flaggið á loft og ranglega dæmd rangstaða.

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, sagði í viðtali eftir leikinn gegn Víkingi að hans menn væru orðnir betri í að halda línu.

„Við erum töluvert betri í því að stíga upp á andstæðinganna og orðnir töluvert betri í að standa í hárri línu," sagði Óskar, en viðtalið má nálgast í spilaranum neðst.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 3 -  2 KR

Það er ekki svo óalgengt að andstæðingar KR séu oft dæmdir rangstæðir eins og sjá má hér að neðan.

Rangstöður í deildarleikjum KR
Víkingur 12 - 1 KR (3-2 lokastaða)
KR 1 - 7 Vestri (2-1 lokastaða)
Stjarnan 9 - 0 KR (4-2 lokastaða)
KR 1 - 6 Fram (2-3 lokastaða)
Afturelding 2 - 2 KR (4-3 lokastaða)
KR 0 - 7 ÍBV (4-1 lokastaða)
Breiðablik 5 - 2 KR (3-3 lokastaða)
KR 1 - 2 ÍA (5-0 lokastaða)
FH 2 - 4 KR (2-2 lokastaða)
KR 2 - 1 Valur (3-3 lokastaða)
KA 2 - 2 KR (2-2 lokastaða)

Fram er samkvæmt wyscout það lið sem hefur oftast verið gripið í rangstöðu, eða 30 sinnum til þessa. Víkingur kemur næst á aftir með 28 rangstöður. KR og FH eru með fæstar rangstöður dæmdar á sig, eða fimmtán hvort liðið.
Óskar Hrafn: Þetta hjálpar mér ekkert - Ég verð bara að trúa þeim
Athugasemdir
banner