Fotbolti.net
19.07.26 - 00:10
Ívan Guðjón Baldursson

2. deild kvenna: Vestri vann toppslaginn

2. deild kvenna: Vestri vann toppslaginn
Canon

Mynd: Vestri

Hertz
Vestri 2 - 1 Einherji
1-0 Raniyah Ajanai Marie Burton ('22)
2-0 Raniyah Ajanai Marie Burton ('30)
2-1 Claudia Maria Daga Merino ('58)
Vestri og Einherji áttust við í eina leik dagsins í 2. deild kvenna og komust heimakonur í tveggja marka forystu í fyrri hálfleik.

Raniyah Burton skoraði mörk Ísfirðinga með átta mínútna millibili og tókst gestunum að minnka muninn í síðari hálfleik. Þar var Claudia Merino á ferðinni á 58. mínútu, en það dugði ekki til.

Einherja tókst ekki að jafna metin svo lokatölur urðu 2-1 og eru liðin jöfn á toppi deildarinnar með 24 stig eftir 10 umferðir.

Þetta þýðir að Fjölnir og Fylkir, sem eiga 22 stig og leik til góða, geta tekið toppsætið með sigri þegar liðin stíga til sviðs seinnipart mánudags. Afturelding er einnig með í fimm liða toppbaráttu sem lofar virkilega góðu, þremur stigum á eftir toppliðunum og með leik til góða gegn Fylki í toppbardaga.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Einherji10+5024
2Vestri10+3524
3Fylkir9+5722
4Fjölnir9+3622
5Afturelding9+2521
6Dalvík/Reynir10-714
79-813
8Augnablik10-2013
9KFR10-427
10ÍR10-184
11Álftanes10-322
12Smári10-761
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.