4. deild: Tíu mörk er Elliði hafði betur í Grafarvogi

Mynd: Elliði Instagram

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Mynd: Elliði Instagram
Vængir Júpiters 4 - 6 Elliði
0-1 Aron Gunnarsson ('7 )
1-1 Brynjar Lár Bjarnason ('9 )
2-1 Óskar Dagur Jónasson ('24 )
2-2 Eyjólfur Andri Sverrisson ('37 )
2-3 Viktor Máni Róbertsson ('45+3)
2-4 Aron Gunnarsson ('45+5)
2-5 Natan Hjaltalín ('47 )
3-5 Eyþór Daði Hauksson ('59 )
4-5 Óskar Dagur Jónasson ('90+25 )
4-6 Emil Ásgeir Emilsson ('90+30)
Rautt spjald: Haukur Steinn Ragnarsson, Elliði ('56)

Vængir Júpíters tóku á móti Elliða í eina leik dagsins í 4. deildinni og fengu var boðið upp á mikið markaregn þar sem tíu mörk voru skoruð og urðu lokatölurnar þær sömu og í bronsleik heimsmeistaramótsins.
Liðin skiptust á að skora í fyrri hálfleik en Elliði náði að setja tvö mörk í uppbótartímanum svo staðan var 2-4 í leikhlé. Aron Gunnarsson var atkvæðamestur með tvennu í liði gestanna.
Natan Hjaltalín jók forystu Elliða í síðari hálfleik áður en Eyþór Daði Hauksson minnkaði muninn, svo staðan var orðin 3-5 þegar klukkustund var liðin af venjulegum leiktíma. Skömmu fyrir það hafði Haukur Steinn Ragnarsson fengið að líta seinna gula spjaldið sitt í liði gestanna og því kláraði Elliði leikinn manni færri.
Þegar rúmar 20 mínútur voru eftir á klukkunni var leikurinn stöðvaður í dágóðan tíma vegna afar ljóts höfuðhöggs þar sem leikmenn sitthvors liðs skullu harkalega saman. Beðið var eftir sjúkrabíl en báðir leikmenn héldu meðvitund allan tímann og blæddi mikið.
Þegar sjúkrabíll kom var leikurinn svo kláraður. Bæta þurfti við rúmum hálftíma í uppbótartíma og skoruðu liðin sitthvort markið. Óskar Dagur Jónasson minnkaði muninn niður í eitt mark með sínu öðru marki fyrir Vængina en Emil Ásgeir Emilsson gerði út um viðureignina af vítapunktinum svo lokatölur urðu 4-6.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Álftanes | 11 | +19 | 30 |
| 2 | Hamar | 11 | +25 | 28 |
| 3 | Árborg | 10 | +24 | 22 |
| 4 | Elliði | 11 | -3 | 16 |
| 5 | Úlfarnir | 11 | +8 | 15 |
| 6 | Vængir Júpiters | 10 | -2 | 11 |
| 7 | KFR | 11 | -13 | 8 |
| 8 | Álafoss | 11 | -15 | 8 |
| 9 | ÍH | 11 | -14 | 7 |
| 10 | Hafnir | 11 | -29 | 7 |