Crystal Palace og Brighton gerðu jafntefli þegar liðin áttust við í ensku úrvalsdeildinni áðan.
Brighton jafnaði metin í uppbótartímanum, en stuttu eftir jöfnunarmarkið fékk Lewis Dunk, fyrirliði Brighton, að líta beint rautt spjald.
Hann fékk rauða spjaldið fyrir fáránlega tæklingu. Hann ákvað að henda sér í tveggja fóta tæklingu á Gary Cahill, miðvörð Crystal Palace.
Frá byrjun 2012-13 tímabilsins hefur Dunk fengið sjö rauð spjöld, meira en nokkur annar leikmaður í fjórum efstu deildum Englands.
Hér að neðan má sjá tæklinguna hræðilegu frá honum í dag.
Lewis Dunk Red Card.
— Robotto (@TheSirRobotto) October 18, 2020
He’s snapped half their defence 😂 #Brighton #Palace pic.twitter.com/HT73xL44dQ
Athugasemdir