18.12.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Geoff Horsfield til WBA. (Staðfest)

Horsfield skýtur að marki.


Horsfield skýtur að marki.

WBA hefur keypt sóknarmanninn Geoff Horsfield frá Wigan á eina milljón punda og hefur leikmaðurinn skrifað undir tveggja og hálfs árs samning eftir að hafa staðist læknisskoðun í dag. Horsfield sem er þrítugur stopaði ekki lengi við hjá Wigan en hann kom til þeirra í september á 1.milljón punda en hann skoraði alls sjö mörk í 16 deildarleikjum fyrir Wigan. Þessi fyrrum sóknarmaður Scarborough, Halifax og Fulham mun fara beint inn í leikmannahóp WBA fyrir leikinn gegn Coventry á laugardag.
