Fotbolti.net
19.01.10 - 18:28
Hafliði Breiðfjörð

Garðar Jóhannsson til Hansa Rostock (Staðfest)

Garðar Jóhannsson til  Hansa Rostock (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Vilhjálmur Siggeirsson

Garðar Jóhannsson er genginn í raðir þýska félagsins Hansa Rostock en þetta staðfesti Magnús Agnar Magnússon umboðsmaður hans við Fótbolta.net í kvöld.
Hansa Rostock leikur í næst efstu deild Þýskalands, Bundesligu 2, þar sem liðið er þessa stundina í 13. sæti.

Garðar skrifaði undir samning við félagið í hádeginu eftir að hafa farið tvívegis á reynslu hjá félaginu á síðustu vikum.

Hann mun gangast undir læknisskoðun hjá félaginu á morgun og hefur strax æfingar með liðinu.

Hann gæti verið með í leiknum gegn 1860 München á föstudag.

Garðar lék síðast með Fredrikstad í Noregi en ákvað að hætta þar þegar samningur hans rann út síðasta haust.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.