19.01.10 - 18:41
Hafliði Breiðfjörð
Heiðar Geir Júlíusson til Ängelholm (Staðfest)

Heiðar Geir í leik með Fram í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Framarinn Heiðar Geir Júlíusson skrifaði í gær undir samning hjá sænska félaginu Ängelholm en eins og við höfðum sagt frá fyrr í vetur stefndi hann að því að yfirgefa Fram þar sem hann er fluttur til Skandinavíu.
,,Ég fékk gott tilboð frá Jönköping en Ängelholm bauð betur. Ég hef trú á þessu félagi,\" er haft eftir Heiðari á vef félagsins.
Heiðar Geir sem er 22 ára gamall þekkir vel til í Svíþjóð þar sem hann lék ellefu leiki í sænsku úrvalsdeildinni með Hammarby árið 2007.
,,Kærasta mín er að fara í nám í Kaupmannahöfn svo við munum setjast að annað hvort í Elsinore eða í Helsingborg,\" hélt Heiðar áfram í viðtali á vefsíðunni HD.se.
Ängelholm leikur í Superettan, næst efstu deild Svíþjóðar en keppni þar hefst 10. apríl næstkomandi.
Heiðar Geir skoraði fjögur mörk í 21 leikjum með Fram í Pepsi-deildinni í sumar auk þess sem hann lék fimm leiki í VISA-bikarnum.

Heimild: HD.se