19.02.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Srnicek til West Ham (Staðfest)




West Ham hefur fengið tékkneska markvörðinn Pavel Srnicek að láni frá Portsmouth í einn mánuð. Alan Pardew stjóri West Ham hefur verið að leita að markmanni en eins og flestir vita fór enski landsliðsmarkvörðurinn David James frá West Ham í janúar og gekk til liðs við Manchester City. Rami Shabaan markvörður Arsenal hefur verið í láni hjá West Ham síðasta mánuðinn en Pardew hefur látið Stephen Bywater spila í markinu og Shaaban vera á bekknum. Nú er hinsvegar spurningin hvað hann gerir fyrst að Srnicek er kominn til félagsins en Shaaban er að fara aftur til Arsenal og því mun hinn reynslumikli Srnicek berjast um markvarðarstöðuna við Bywater.
Srnicek kom til Portsmouth síðasta sumar en hefur verið þriðji í röðinni um að standa á milli stanganna hjá félaginu, Shaka Hislop og Harald Wapenaar eru markverðir félagsins númer eitt og tvö og því ákvað Srnicek að fara til West Ham á láni.
