19.03.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Mark Schulte til ÍBV (Staðfest)




Bandaríkjamaðurinn Mark Schulte mun leika með ÍBV næsta sumar en þetta varð ljóst seinnipartinn í dag og kemur fram á heimasíðu Eyjaliðsins. Schulte sem er hávaxinn lék æfingaleik með ÍBV gegn Val í lok febrúar og þótti standa sig vel í 3-1 sigri liðsins og náði meðal annars að skora eitt mark. ÍBV ákvað að semja við kauða og félag hans Minnesota Thunder. Schulte er talinn vera spenntur fyrir því að ganga til liðs við ÍBV en ævintýraþrá hans spilaði stóran þátt í því að hann ákvað að semja við Eyjamenn. Hann er annar erlendi leikmaðurinn sem að kemur til ÍBV í dag því að í morgun varð ljóst að Ian Jeffs mun koma aftur frá enska liðinu Crewe Alexandra og spila með ÍBV en hann lék einnig með liðinu síðastliðið sumar.
