Kristall Máni Ingason (2002) verður í íslenska landsliðshópnum sem kemur saman í næstu viku. Framundan eru vináttuleikir gegn Kanada og Haítí sem spilaðir verða í Ontario í Kanada. Þetta er í fyrsta sinn sem Kristall er í íslenska landsliðshópnum í alþjóðlegum landsleikjaglugga.
Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson þekkir vel til Kristals. Hann fékk Kristal til Víkings frá FC Kaupmannahöfn á sínum tíma og undir stjórn Arnars blómstraði Kristall og hélt aftur erlendis sumarið 2022.
Kristall fór til Rosenborg en náði ekki að heilla þar og hélt í kjölfarið til SönderjyskE í Danmörku. Þar lék hann mjög vel fyrir áramót og var svo keyptur til Brann í Noregi fyrr á þessu ári.
Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson þekkir vel til Kristals. Hann fékk Kristal til Víkings frá FC Kaupmannahöfn á sínum tíma og undir stjórn Arnars blómstraði Kristall og hélt aftur erlendis sumarið 2022.
Kristall fór til Rosenborg en náði ekki að heilla þar og hélt í kjölfarið til SönderjyskE í Danmörku. Þar lék hann mjög vel fyrir áramót og var svo keyptur til Brann í Noregi fyrr á þessu ári.
Mun klárlega stuða marga
„Ég þekki Kristal mjög vel, hann er skemmtilega hrokafullur á æfingasvæðinu og á vellinum. Hjá Víkingi man maður eftir því að honum leið alltaf vel þegar við vorum að spila þessa stóru leiki í Evrópukeppni - leið best þegar hávaðinn var sem mestur. Við erum öll minnug þess þegar hann var rekinn út af á móti Malmö. Mig langar að sjá hvaða 'level' hann getur náð. Við vitum það aldrei fyrir, sumir stoppa bara í Bestu deildinni og sumir stoppa í Skandinavíu."
„Ég tel að hann geti náð ennþá lengra og komið inn með ákveðna skapgerð og ákveðinn anda inn í hópinn. Hann mun klárlega stuða marga, hann er þannig leikmaður á æfingum. Hann getur líka spilað mismunandi stöður; getur verið miðjumaður, kantmaður og tía. Sá fjölbreytileiki heillar okkur."
„Davíð (Snorri) þekkir hann mjög vel úr U21 liðinu, ég man eftir leik gegn Portúgal og Kristall var einn af fáum, ef ekki sá eini, sem hefði getað klæðst í búning Portúgala og litið nokkuð vel út þar. Hann er með hæfileika, en það er ekki nóg í þessum bransa, þú verður líka að sýna þrautseigju. Hann er búinn að ganga í gegnum ýmislegt, ég held að hann hafi þroskast líka og mér finnst hann eiga skilið að vera í þessum hóp núna," sagði Arnar á fréttamannafundinum í gær.
Kristall hefur verið að glíma við meiðsli en er að snúa aftur á völlinn. Brann á útileik gegn Bryne í norska bikarnum í kvöld og Arnar býst við því að Kristall verði í hópnum.
„Nýjustu upplýsingar eru að hann sé bara klár, hann fékk smá í nárann og missti af síðasta leik. Hann verður örugglega í hóp á morgun (í dag). Það er svo leikur aftur um helging, hann er bara klár."
Getur spilað á stærra sviði en hjá Brann
Kristall er sóknarsinnaður miðjumaður sem hefur til þessa spilað sex A-landsleiki. Arnar var spurður nánar út í Kristal í viðtali við Fótbolta.net og mbl.is eftir fundinn. Arnar var spurður út í þau ummæli að Kristall eigi eftir að stuða marga.
„Hann er óþolandi, á jákvæðan hátt. Það sem ég fíla best við hann er, og tengi við sem leikmaður, er að þú byrjar ekki að rífa kjaft fyrr en þú byrjar að standa þig inn á vellinum. Hann var mjög hlédrægur og kannski feiminn inn á æfingasvæðinu hjá Víkingi fyrsta eina og hálfa árið. En um leið og þú verður stærri prófíll og ferð að gera eitthvað fyrir liðið, þá getur þú haft efni á að rífa aðeins kjaft. Og þá byrjaði minn maður. Mér skilst að hann sé rífandi kjaft úti hjá Brann núna, og það verður gaman að rífa kjaft við Gylfa og þessa stráka. Það er gott að eiga mismunandi karaktera í hóp og þetta skap hans mun hjálpa okkur á stærra sviði."
„Ég vonast til að hann átti sig á því að fótboltahæfileikar hans, með fullri virðingu fyrir Brann sem er gríðarlega flottur klúbbur, geta komið honum enn lengra. Hann þarf að sýna það líka í landsliðinu (að hann geti farið lengra), spennandi að sjá hvernig hann dílar við nýtt umhverfi (með landsliðinu)," sagði Arnar í viðtalinu sem má nálgast hér að neðan.
Athugasemdir



