19.05.04 - 18:35
Elvar Geir Magnússon
Zebina til Juventus (Staðfest)




Varnarmaðurinn Jonathan Zebina hefur skrifað undir fimm ára samning við Juventus eða til 30.júní 2009. Zebina er leikmaður hjá Roma og hefur aðeins skorað eitt mark á ferli sínum en það var gegn Juventus!
Lengi hefur verið ljóst að Zebina, sem er 25 ára, ætlaði ekki að endurnýja samning sinn við Roma. Hann var orðaður við AC Milan en þegar liðið gekk frá kaupum á Jaap Stam ákvað Juventus að klófesta Zebina til að styrkja vörn liðsins. Juventus fékk 42 mörk á sig á tímabilinu.
Zebina er mjög ánægður með að vera á leið til Juventus en hann kom fyrst í ítalska boltann 1998 þegar hann gekk til liðs við Cagliari. Hann færði sig síðan yfir til Roma árið 2000.
Zebina er mjög ánægður með að vera á leið til Juventus en hann kom fyrst í ítalska boltann 1998 þegar hann gekk til liðs við Cagliari. Hann færði sig síðan yfir til Roma árið 2000.
