19.05.12 - 17:40
Ívan Guðjón Baldursson
Manuel Jose hættur hjá Al-Ahly (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Manuel Jose, þjálfari Al-Ahly í Egyptalandi, hefur sagt upp starfi sínu hjá félaginu vegna ástandsins sem ríkir í landinu.
Jose, sem er 66 ára, hætti hjá félaginu í febrúar eftir að að minnsta kosti 74 stuðningsmenn létu lífið í slagsmálum eftir að Al-Ahly tapaði gegn erkifjendum sínum. Hann var þó endurráðinn í starfið tveimur vikum síðar.

Nú hefur Jose ákveðið að hætta fyrir fullt og allt og kennir hann ástandinu í landinu um það.
,,Þetta var minn síðasti leikur sem þjálfari Al-Ahly,\" sagði Jose við fréttamenn eftir 2-0 tap liðsins í vináttuleik gegn Espanyol.
,,Ég er sorgmæddur en ég verð að fara. Ástandið í Egyptalandi er erfitt. Öllum er sama um fótboltann, allir tala um pólitík.
,,Meira að segja leikmennirnir eru hættir að einbeita sér að fótboltanum útaf pólitíkinni og andrúmsloftinu sem fylgir henni.
,,Svona aðstæður kalla ekki á góð vinnubrögð svo ég vil frekar fara frá félaginu heldur en að mistakast að vinna titlana sem stuðningsmennirnir vilja.
,,Ég vildi enda þjálfaraferilinn minn hjá Al-Ahly en ég get það ekki.\"
Jose vann deildina sex sinnum sem þjálfari Al-Ahly og Meistaradeild Afríku fjórum sinnum.