19.07.04 - 11:11
Pétur Kristjánsson
Babbel til Stuttgart (Staðfest)

Kominn heim í heiðardalinn


Kominn heim í heiðardalinn

Markus Babbel er kominn til Stuttgart eftir að hafa fengið frjálsa sölu frá Liverpool. Hann gerði samning til tveggja ára við þýska liðið.
Babbel var lánaður til Blackburn á síðasta tímabili eftir að hafa ekki komist í liðið hjá Gerard Houllier þáverandi stjóra Liverpool. Babbel missti svo af megninu af tímabilinu 2001/2002 vegna Guillain-Barre sjúkdómsins og var honum þá ráðlagt að leika ekki knattpyrnu framar en hann hefur náð sér fullkomnlega af því og getur ekki beðið eftir byrja að spila í heimalandinu.
