19.07.04 - 19:14
Elvar Geir Magnússon
McAteer til Tranmere (Staðfest)

Jason McAteer djúpt hugsi.

Jason McAteer djúpt hugsi.

Írski landsliðsmaðurinn Jason McAteer hefur loksins fundið sér félag en leitin hefur staðið yfir síðan hann yfirgaf Sunderland eftir síðasta leiktímabil. McAteer er 33 ára og hefur skrifað undir tveggja ára samning við Tranmere Rovers. Fyrr í sumar stefndi allt í það að hann myndi ganga til liðs við Leicester en það rann út í sandinn þar sem launakröfur hans voru of háar fyrir félagið.
Tranmere er í ensku 1.deildinni en þjálfari liðsins er Brian Little. Vonast er til að reynsla McAteer muni hjálpa liðinu að berjast um að komast upp í úrvalsdeildina en hann lék áður með Liverpool og Blackburn.
"Þetta var ekki erfið ákvörðun eftir að hafa rætt við Brian Little. Ég fylgdist með Tranmere á síðasta leiktímabili og Brian gerði frábæra hluti. Liðið var óheppið að komast ekki í umspilið í deildinni. Þetta tímabil er liðið líklegt til afreka og vonandi get ég hjálpað liðinu að komast upp." sagði McAteer.