De La Fuente: Ætla ekki að setja mann á Messi

Luis de la Fuente

Mynd: EPA

De la Fuente ætlar ekki að setja mann á Messi

Mynd: EPA

Hann vill ekki bara Lamine Yamal saman við Messi

Mynd: EPA

Luis de la Fuente

Mynd: EPA
Luis de la Fuente, landsliðsþjálfari Spánar, segir ekki allt vera undir í úrslitaleik HM gegn Argentínu síðar í dag. Það eitt að vera kominn í úrslitaleikinn séu forréttindi. Hann ræddi einnig Lionel Messi og Lamine Yamal fyrir stórleikinn.
De la Fuente er að stýra Spánverjum í aðeins öðrum úrslitaleik þeirra í sögu HM.
Spánn er ríkjandi Evrópumeistari og getur endurtekið afrekið frá 2010, þegar þjóðin sat á sama tíma á Evrópu- og heimsmeistaratitlinum.
De la Fuente var spurður út í Lionel Messi, sem hefur farið hamförum á mótinu, og hvort til stæði að láta einn leikmann elta hann um allan völl. Svo verður þó ekki.
„Ég ætla að segja ykkur skemmtilega sögu af Messi. Ég kynntist honum þegar ég þjálfaði U19 ára lið Sevilla og við mættum Barcelona í bikarkeppninni. Þar höfðu menn talað mjög vel um strák sem hét Messi og við ákváðum því að setja mann sérstaklega á hann.“
„Staðan var 0-0 á 70. mínútu þegar leikmaðurinn sem gætti hans fékk gult spjald og ég ákvað að taka hann af velli. Á næstu fimmtán mínútum skoraði Messi fjögur mörk.“
„Þýðir það að við ætlum að setja mann sérstaklega á hann? Nei. Munum við hafa góðar gætur á honum? Já, rétt eins og þeir þurfa að gera gagnvart okkar leikmönnum,“ sagði De la Fuente.
Lamine Yamal er ein helsta stjarna spænska liðsins og þegar orðinn einn stærsti fótboltamaður heims. De la Fuente vill þó ekki bera hann saman við Messi.
„Lamine verður að fá að vera Lamine. Það er ekki hægt að endurtaka það sem Messi hefur gert. Hann er ótrúlegt hæfileikabúnt og fyrirmynd ungra leikmanna með viðhorfi sínu, hegðun og þeirri frábæru frammistöðu sem hann sýnir á þessum aldri.“
„Þetta verður stórkostleg sýning tveggja frábærra liða. Leikur fullur af hæfileikum, snilld og frábærum fótbolta.“
Argentínumenn hafa verið sakaðir um að beita ýmsum brögðum til að knýja fram úrslit en De la Fuente tekur ekki undir að þeir leiki óheiðarlega.
„Ég virði skoðanir allra en er ósammála þér. Ég ber ómælda virðingu fyrir liði sem hefur tvívegis unnið Copa America, auk HM og Finalissima. Engu öðru liði hefur tekist það í sögunni og góðvinur minn (Lionel Scaloni) stýrir liðinu.“
„Ég hef ekkert nema aðdáun á þeim. Bæði lið munu mæta til leiks og beita sínum fótboltavopnum.“
De la Fuente segir heldur ekki að allt sé undir í kvöld. Það eitt að komast í úrslitaleik HM sé afrek sem ekki megi gera lítið úr.
„Það mikilvægasta er að koma sér í þá stöðu að geta unnið keppnina. Við ætlum að njóta þess, spila okkar leik og kunna að meta augnablikið. Ef þú segðir mér að við gætum leikið til úrslita á HM á hverju ári en myndum alltaf tapa, þá myndi ég samt taka því,“ sagði De la Fuente að lokum.
Leikurinn hefst klukkan 19:00 í kvöld og er í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net