Iheanacho velur Tyrkland framyfir Celtic (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Nígeríski framherjinn Kelechi Iheanacho er búinn að skipta yfir til Tyrklands eftir að hafa skorað 9 mörk í 24 leikjum með Skotlandsmeisturum Celtic á síðustu leiktíð sem einkenndist af meiðslavandræðum.
Iheanacho gerði skammtímasamning við Celtic sem rann út um síðustu mánaðamót. Skotarnir buðu Iheanacho lengri samning en leikmaðurinn ákvað að skipta frekar yfir til Bursaspor, sem leikur í næstefstu deild í Tyrklandi.
Iheanacho er 29 ára gamall og hóf ferilinn hjá Manchester City áður en hann skipti yfir til Leicester. Hann hefur í heildina komið að 69 mörkum með beinum hætti í 196 leikjum í ensku úrvalsdeildinni.
Bursaspor vann þriðju efstu deild í Tyrklandi á síðustu leiktíð og hefur gert Iheanacho að stjörnuleikmanni sínum í tilraun til að vinna sér aftur inn sæti í efstu deild eftir fjarveru frá 2019.
Bursaspor varð afar óvænt tyrkneskur meistari 2010. Það er eini deildartitill Bursaspor í efstu deild og vann félagið tyrkneska bikarinn 1986.

Kelechi Iheanacho ????????
— Bursaspor (@BursasporSk) July 17, 2026
Kulübümüz, yeni sezon kadro planlama çal??malar? kapsam?nda Nijeryal? futbolcu Kelechi Iheanacho ile anla?ma sa?lam??t?r.
3 Ekim 1996 do?umlu olan ve santrfor mevkisinde görev yapan Iheanacho; kariyeri boyunca Manchester City, Leicester City, Sevilla ve… pic.twitter.com/xahVb69Ryc

Mynd: EPA