Fotbolti.net
19.07.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Jhon Durán fer til Benfica

Jhon Durán fer til Benfica
Canon

Mynd: Al-Nassr

Portúgalska stórveldið Benfica er í viðræðum við Al-Nassr um að fá Jhon Durán á lánssamningi með kaupmöguleika.
Jhon Duran klárar tímabilið í Rússlandi
TENGT EFNI

Jhon Duran klárar tímabilið í Rússlandi

Durán er 22 ára framherji frá Kólumbíu sem hefur átt erfitt með aðlögunarferlið í Sádi-Arabíu eftir að hafa gert góða hluti með Aston Villa í enska boltanum.

Al-Nassr borgaði um 80 milljónir evra til að festa kaup á Durán í janúar 2025 og gaf framherjanum risasamning. Hann skoraði 12 mörk í 18 leikjum en er sagður hafa glímt við hegðunarvandamál og var lánaður til stórveldanna Fenerbahce og Zenit en átti erfitt uppdráttar hjá báðum félögum.

Durán var með nokkur tilboð á borðinu og hafnaði minnst tveimur öðrum Meistaradeildarfélögum til að skipta til Benfica, þar sem hann er mjög spenntur að starfa með Marco Silva þjálfara.

Durán samþykkir launalækkun til að fara á lán til Benfica, sem mun deila launagreiðslum leikmannsins með Al-Nassr.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.