Fotbolti.net
19.07.26 - 12:25
Brynjar Ingi Erluson

Sölvi segir Erling ekki á förum frá Víkingi - „Það er engin umræða um það“

Erlingur Agnarsson

Erlingur Agnarsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkinga, segir ekkert til í því að Erlingur Agnarsson sé á förum frá félaginu í glugganum.
Lestu um leikinn: Þór 2 - 1 Víkingur R.
Erlingur hefur verið mikilvægur hluti af sigursælu liði Víkings undanfarin ár.

Hann er uppalinn hjá félaginu og hefur verið hluti af meistaraflokki þess frá árinu 2015, áður en gullaldarskeiðið hófst. Á þessum ellefu árum hefur hann spilað yfir 250 leiki fyrir félagið.

Erlingur hefur þrisvar orðið Íslandsmeistari með Víkingi og fjórum sinnum bikarmeistari.

Hinn 28 ára gamli Erlingur hefur fengið takmarkaðar mínútur að undanförnu og kom ekkert við sögu í 2-1 tapinu gegn Þór um helgina.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur hann verið boðinn öðrum félögum, en Sölvi segir ekkert til í því að Erlingur sé á förum í þessum félagaskiptaglugga.

„Nei, það er engin umræða um að Elli sé á förum frá Víkingi. Við mátum það þannig að þetta lið var sterkast til að vinna í dag og þannig er það.“

„Hann er ferskur, er að æfa, tilbúinn að leggja á sig fyrir hópinn. Hann er búinn að vera partur af hópnum og koma inn á í leikjum og búinn að byrja leiki. Hann kom síðast inn á gegn Györ og gegnir sínu mikilvæga hlutverki,“
sagði Sölvi við Fótbolta.net.

Sölvi svekktur: Ósjálfrátt tilfinningaleg þynnka

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.15+3840
2KR16+2235
3Fram15+1333
4Breiðablik14+825
5Valur16-619
6Keflavík14-716
7ÍBV14-715
8Stjarnan15-815
9ÍA14-915
10KA14-813
11FH14-1111
12Þór15-2511
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.