Fotbolti.net
19.07.26 - 11:14
Brynjar Ingi Erluson
Í samstarfi við styrktaraðila

Stjarna Ástrala í frönsku deildina (Staðfest)

Stjarna Ástrala í frönsku deildina (Staðfest)
Canon

Mynd: Troyes FC

Ástralski markvörðurinn Patrick Beach hefur samið við franska félagið Troyes en hann kemur frá Melbourne City. Þetta kemur fram í tilkynningu í dag.
Beach fékk mikið lof fyrir frammistöðu sína í marki Ástrala á heimsmeistaramótinu.

Hann fór á kostum í 2-0 sigrinum á Tyrklandi og átti síðan gríðarlega mikilvæga vörslu gegn Egyptalandi í 32-liða úrslitum.

Frammistaðan á HM hefur nú skilað honum samningi við franska félagið Troyes. Beach kemur til félagsins eftir þrjú frábær tímabil með Melbourne City, þar sem hann varð deildarmeistari.

Þessi 22 ára gamli markvörður lék 64 leiki í öllum keppnum fyrir Melbourne og hélt 25 sinnum hreinu.

Félagaskiptin gengu nokkuð greiðlega fyrir sig, enda eru Melbourne City og Troyes bæði í eigu City Football Group, sem á meðal annars Manchester City.

Troyes leikur í frönsku úrvalsdeildinni á komandi tímabili eftir að hafa unnið B-deildina á síðustu leiktíð.

Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.