Þýskur varnarmaður í Fjölni (Staðfest)

Mynd: Fjölnir

Mynd: Fjölnir
Fjölnir var að krækja sér í nýjan leikmann sem á að hjálpa liðinu á komandi misserum. Liðið hefur verið hikstandi í 2. deildinni og situr um miðja deild með 18 stig eftir 13 umferðir - fimm stigum frá öðru sætinu sem veitir þátttökurétt í Lengjudeildinni á næsta ári.
Nýi leikmaðurinn er 23 ára Þjóðverji sem gerir tveggja og hálfs árs samning við Fjölni eftir að hafa leikið í bandaríska háskólaboltanum undanfarin ár. Hann heitir Luka Geishauser og leikur sem miðvörður að upplagi en er einnig liðtækur miðjumaður.
„Luka er öflugur varnarmaður sem mun styrkja liðið fyrir komandi átök. Við bindum miklar vonir við hann og hlökkum til að sjá hann í Fjölnistreyjunni," segir Gunnar Már Guðmundsson þjálfari Fjölnis.
Luka er sömuleiðis spenntur fyrir nýju verkefni eftir að hafa leikið fyrir CSU Bakersfield Roadrunners í Bandaríkjunum.
„Ég er virkilega ánægður að ganga til liðs við Fjölni og hlakka til að leggja mitt af mörkum fyrir félagið."