19.08.04 - 11:34
Magnús Már Einarsson
Amoroso til Malaga (Staðfest)

Amoroso í baráttunni.

Amoroso í baráttunni.

Brasilíski framherjinn Marcio Amoroso hefur skrifað undir eins árs samning við spænska liðið Malaga með möguleika á framlengingu um tvö ár. Hinn þrítugi Amoroso hefur verið án félags síðan að Borussia Dortmund leysti hann undan samningi í apríl eftir að leikmaðurinn hafði átt í stöðugum erjum við félagið. Amoroso kom til Dortmund frá Parma árið 2001 á um 16,6 milljónir punda en eftir að hann lenti í hnémeiðslum í september á síðasta ári þá lék hann ekkert meir með Dortmund.
Amoroso hefur leikið með Udinese, Guarani, Flamengo og japanska liðinu Verdy Kawasaki svo eitthvað sé nefnt en Glasgow Celtic og Birmingham höfðu hann bæði til reynslu fyrr í sumar.
Malaga er nú loksins búið að finna arftaka Salva Ballesta í framlínunni en hann skoraði grimmt á síðustu leiktíð fyrir liðið þar sem að hann var í láni frá Valencia. Fyrr hafði Malaga reynt að fá El-Hadji Diouf frá Liverpool en nú er liðið búið að krækja í Amoroso.