19.08.04 - 15:18
Elvar Geir Magnússon
Diouf kominn til Bolton (Staðfest)




El Hadji Diouf mun spila með Bolton á lánssamningi út þetta tímabil. Liðið vann samkeppnina við Fiorentina og hefur fengið senegalska landsliðsmanninn á The Reebok. Diouf hefur ekki náð að sanna sig með Liverpool eftir að hann kom á Anfield frá Lens.
Diouf er 23 ára og verður líklegast í leikmannahópi Bolton sem leikur gegn Fulham um helgina. Sam Allardyce vonast til að Diouf muni sýna það hjá félaginu af hverju hann var valinn knattspyrnumaður ársins í Afríku á sínum tíma.
