Norwich hefur gengið frá kaupum á Mathias Svensson sóknarmanni Charlton en kaupverðið fékkst ekki uppgefið. Svensson sem er sænskur landsliðsmaður skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning og fer hann beint inn í hópinn fyrir leik Norwich gegn Ipswich á sunnudag. Annar sóknarmaður Darren Huckerby er nú að semja við Norwich eftir að Manchester City samþykkti tilboð Norwich í kappann.