20.01.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Ian Pearce og Andy Melville skipta um lið (Staðfest)

Andy Melville sem hér er í baráttunni er farinn til West Ham.


Andy Melville sem hér er í baráttunni er farinn til West Ham.

Varnarmaðurinn Ian Pearce hefur gengið til liðs við Fulham en West Ham fær Welska varnarmaðurinn Andy Melville í skiptum auk peninga en upphæðin fékkst ekki uppgefin. Melville hefur þegar leikið sinn fyrsta leik með West Ham, gerði það síðastliðinn laugardag gegn Sheffield United en hann fór í læknisskoðun í dag og stóðst hana með glæsibrag. Pearce var á sínu sjöunda ári hjá West Ham eftir að hafa komið til liðsins frá Blackburn árið 1997.
