20.01.04 - 00:00
Elvar Geir Magnússon
Eusebio til Perugia (Staðfest)




Miðjumaðurinn Eusebio Di Francesco hefur tekið eitt lítið hænuskref upp með því að yfirgefa neðsta lið Seríu-A á Ítalíu fyrir liðið sem er í næst neðsta sætinu. Hann hefur verið orðaður við enska liðið Charlton Athletic í ítölskum fjölmiðlum en tók upp pennann í dag og skrifaði undir hjá Perugia.
Þessi 34.ára leikmaður spilaði 12 landsleiki með Ítalíu á sínum tíma og kemur frá Ancona til að hjálpa Perugia að forðast fall. Perugia hefur enn ekki sigrað í deildinni á tímabilinu og situr í 17.sætinu með 10 stig eftir 10 jafntefli. Botnlið Ancona hefur aðeins 5 stig og hefur einnig ekki sigrað leik.
