20.01.04 - 00:00
Elvar Geir Magnússon
Sóknarmaðurinn McBride til Fulham (Staðfest)

Fulham hefur keypt bandaríska sóknarmanninn Brian McBride en hann skrifaði í dag undir tveggja ára samning við félagið. Þessi 31.árs leikmaður hefur skorað 23 mörk í sínum 72 landsleikjum og valdi Fulham frekar en Blackburn. McBride er ekki ókunnur enska boltanum því hann spilaði með Everton á síðasta tímabili á lánssamningi. Þá hefur hann spilað í búningi Preston North End.
Chris Coleman hefur tröllatrú á leikmanninum og segir að hann geti lagt upp mörk alveg eins og hann getur skorað þau. Þá telur hann reynslu hans vera mikilvæga en hans hlutverk er að fylla skarðið sem Louis Saha skilur eftir sig en hann hefur verið seldur til Manchester United. Samningur McBride er til ársins 2006.
McBride er annar landsliðsmaður Bandaríkjanna sem kemur til Fulham í janúar, áður fékk Coleman leikmanninn Carlos Bocanegra frá Chicago Fire. Hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið í gær en átti ekki góðan leik líkt og hinir varnarmenn liðsins.