Fotbolti.net
20.01.10 - 07:45
Magnús Már Einarsson

Andri Steinn Birgisson til Raufoss (Staðfest)

Andri Steinn Birgisson til Raufoss (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Andri Steinn Birgisson hefur gert tveggja ára samning við norska félagið Raufoss en þetta staðfesti hann við Fótbolta.net í gær.
Félagaskiptin hafa legið í loftinu í þónokkurn tíma en Andri Steinn kemur til Raufoss frá Asker.

Haraldur Ingólfsson lék á árum áður með Raufoss en félagið missti sæti sitt í næstefstu deild árið 2007 vegna fjárhagsvandræða og leikur nú í þriðju efstu deild.

Andri Steinn, sem er 25 ára gamall, fór til Noregs fyrir ári en hann samdi þá við Asker.

Hann lék með Asker fyrri hlutann af síðasta tímabili en í júlí fór hann í uppeldisfélag sitt Fjölni þar sem að hann lék út sumarið.

Andri lék með Grindavík áður en hann fór til Asker en hann hefur einnig leikið með Fram, Víkingi R., Fylki og Aftureldingu hér á landi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.