Fotbolti.net
20.01.10 - 19:56
Alexander Freyr Tamimi

Kazim-Richards á láni til Toulouse (Staðfest)

Kazim Kazim heldur til Toulouse á láni.

Kazim Kazim heldur til Toulouse á láni.

Canon

Mynd: Getty Images

Tyrkneski landsliðsmaðurinn Colin Kazim-Richards hefur gengið til liðs við franska úrvalsdeildarliðið Toulousa á láni frá Fenerbache út tímabilið.
Hinn 23 ára framherji, betur þekktur sem Kazim Kazim, var formlega kynntur sem leikmaður Toulouse í dag fyrir leik liðsins gegn Nancy.

Þessi fyrrum leikmaður Sheffield United mun líklega spila sinn fyrsta leik gegn Guingamp í næstu viku og hlakkar hann til að fá nýja áskorun. Hann er samningsbundinn Fenerbache þar til í júní en Toulouse mun geta keypt hann þegar lánið endar.

„Toulouse sýndi mikinn áhuga og ég ákvað það strax að þetta var staðurinn sem ég vildi spila á,“ sagði Kazim Kazim.

„Ég veit hversu mikið efni er í þessu félagi. Þeir voru í fjórða sæti á seinasta tímabili og þeir vilja halda áfram.“

„Ég yfirgef Fenerbache án nokkurrar eftirsjár. Það er undir mér komið að sanna fyrir þeim að ég vilji vera lengur en þessa sex mánuði. Ég mun spila hvar sem þjálfarinn segir mér að vera.“

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.