Fotbolti.net
20.01.25 - 19:18
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Aston Villa hafnaði tilboði West Ham í Jhon Duran

Aston Villa hafnaði tilboði West Ham í Jhon Duran
Canon

Mynd: Getty Images

Aston Villa hefur hafnað tilboði West Ham í kólumbíska framherjann Jhon Duran.

West Ham hefur lengi haft áhuga á framherjanum en félagið reyndi að fá hann í sumar.
Graham Potter, nýráðinn stjóri West Ham, er mjög hrifinn af leikmanninum en Aston Villa hafnaði 57 milljón punda tilboði í leikmanninn.

Villa vill ekki selja leikmanninn en félagið metur hann á um 70 milljóniir punda.

Þessi 21 árs gamli framherji skrifaði nýlega undir nýjan samning við Villa sem gildir til ársins 2030. Hann hefur komið við sögu í 27 leikjum í öllum keppnum á þessu tímabili og skorað 12 mörk.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.