20.04.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Katrín Jónsdóttir í Val (Staðfest)




Katrín Jónsdóttir þriðja leikjahæsta kona íslenska landsliðsins hefur ákveðið að ganga til liðs við Val en þetta kom fram í Morgunblaðinu í morgun. Katrín sem að er 26 ára á 48 A-landsleiki að baki en hún mun ekki koma til Íslands fyrr en 18.júní því að hún er í læknisnámi í Noregi.
Katrín skoraði 43 mörk í 97 deildaleikjum með Kolbotn en áður en hún hélt utan skoraði hún 25 mörk í 79 deildaleikjum með Breiðabliki og Stjörnunni.
