Mourinho orðaður við Real Madrid - Curtis Jones til Aston Villa?
   mán 20. apríl 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Sjö leikmenn gætu yfirgefið Real Madrid
Eduardo Camavinga gæti verið á förum frá Real Madrid
Eduardo Camavinga gæti verið á förum frá Real Madrid
Mynd: EPA
Spænska félagið Real Madrid ætlar að endurbyggja hópinn í sumar og er talið að sjö leikmenn gætu yfirgefið félagið, en þetta segir spænski miðillinn Marca.

Það stefnir allt í að Real Madrid fari í gegnum titlalaust tímabil í fyrsta sinn í fimm ár.

Liðið er búið að missa Barcelona allt of langt frá sér í titilbaráttunni á Spáni og þá datt liðið úr leik í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og spænska konungsbikarnum.

Marca segir að Florentino Perez, forseti félagsins, ætli að ráðast í aðgerðir í sumarglugganum, en hann ætlar að losa sig við sjö leikmenn.

Það er ljóst að David Alaba mun yfirgefa félagið þegar samningur hans rennur út eftir tímabilið. Miðjumaðurinn Dani Ceballos á ár eftir af samningi sínum en talið er að hann verði einnig látinn fara.

Franski leikmaðurinn Eduardo Camavinga og Raul Asencio hafa ekki spilað vel upp á síðkastið og gæti vel farið svo að þeir verði seldir ásamt Fran Garcia.

Hinn ungi og efnilegi framherji Gonzalo Garcia er ekki ætlað stórt hlutverk á næstu leiktíð og eru Madrídingar að íhuga að lána hann út ásamt Argentínumanninum Franco Mastantuono, sem kom til félagsins frá River Plate á síðasta ári.

Áætlun Real Madrid er að byggja liðið í kringum Vinicius Jr og Kylian Mbappe. Þeir eru ósnertanlegir og þá vill félagið halda þeim Aurelien Tchouameni, Arda Güler, Federico Valverde, Trent Alexander-Arnold og Eder Militao áfram í hópnum.
Slapp
banner