Fotbolti.net
20.05.04 - 22:25
Magnús Már Einarsson

Samuel til Real Madrid (Staðfest)

Walter Samuel til hægri fagnar marki ásamt Emerson.

Walter Samuel til hægri fagnar marki ásamt Emerson.

Canon
Real Madrid hefur gengið frá kaupum á argentíska varnarmanninum Walter Samuel frá Roma en frá þessu greindi félagið í kvöld. Hinn 26 ára Samuel hefur samþykkt fimm ára samning Real Madrid og mun hann ganga til liðs við liðið fyrsta júlí. Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en það er talið vera um fimmtán milljónir punda.
Roma varð að selja Samuel þar sem að félagið á í fjárhagsvandræðum. Real Madrid hefur keypt eitt stórt nafn á hverju sumri seinustu ár og hafa Luis Figo, Zinedine Zidane, Ronaldo og David Beckham allir komið til liðsins síðustu árin. Liðið hefur meira verið í að kaupa leikmenn með sóknarhæfileika en virðist nú ætla að huga að vörninni.

Vörnin hjá félaginu hefur verið í molum í vetur og er það stór hluti af því að liðið stendur uppi án titils nú í lok leiktíðar en það hefur ekki gerst síðan árið 1999. Liðið hefur fengið á sig 50 mörk í La Liga í vetur en helstu keppinautanir, Valencia og Barcelona hafa fengið 26 og 37 mörk á sig.

Samuel sem að var kallaður "veggurinn" hjá Roma hóf feril sinn hjá Newell's Old Boys en fór árið 1998 til Boca Juniors. Árið 2000 fór hann til Roma þar sem að hann hefur leikið 122 leiki og vakið áhuga hjá Chelsea meðal annars en Real Madrid hefur tryggt sér kappann.

Það er þó talið að þetta séu ekki einu kaup Real Madrid og er liðið sagt vera á eftir Xabi Alonso miðjumanni Real Sociedad, Francesco Totti og Emerson leikmönnum Roma og Ruud van Nistelrooy sóknarmanni Manchester United.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.