Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 20. maí 2022 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Vísir.is 
Arndís ekki meira með Keflvíkingum í sumar - Á von á barni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arndís Snjólaug Ingvarsdóttir, leikmaður Keflavíkur í Bestu deildinni, verður ekki meira með liðinu í sumar en hún gengur með barn. Þetta staðfesti Gunnar Magnús Jónsson, þjálfari liðsins, í samtali við Stöð 2 Sport í gær.

Arndís, sem hefur komið við sögu í fyrstu fjórum leikjum liðsins í sumar, var ekki með liðinu í markalausa jafnteflinu gegn Selfyssingum í 5. umferð deildarinnar í gær.

Gunnar Magnús, þjálfari liðsins, tilkynnti það þá í viðtali við Stöð 2 Sport að hún væri ólétt og yrði ekki meira með í sumar.

Keflavík vann fyrstu tvo leiki tímabilsins en tapað svo næstu tveimur leikjum áður en liðið sótti stig á JÁVERK-völlinn í gær.

Orri Sigurður Ómarsson, leikmaður Vals, er kærasti Arndísar og óskum við þeim innilega til hamingju.
Athugasemdir
banner
banner
banner