20.06.12 - 06:00
Elvar Geir Magnússon
Tomasz Kuszczak til Brighton (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Brighton hefur fengið pólska markvörðinn Tomasz Kuszczak frá Manchester United. Þessi þrítugi leikmaður hefur skrifað undir tveggja ára samning við Brighton sem leikur í ensku Championship-deildinni.
Kuszczak hefur ekki átt sjö dagana sæla hjá United en hann hefur fá tækifæri fengið. Hann var um tíma lánaður til Watford á síðasta tímabili.
Kuszczak hefur ekki átt sjö dagana sæla hjá United en hann hefur fá tækifæri fengið. Hann var um tíma lánaður til Watford á síðasta tímabili.
Gus Poyet, stjóri Brighton, fagnar því að fá pólska markvörðinn en fleiri félög, bæði á Englandi og utan landsins, vildu fá hann í sínar raðir.
Fyrir hjá Brighton eru markverðirnir Casper Ankergren og Peter Brezovan.
Fyrir hjá Brighton eru markverðirnir Casper Ankergren og Peter Brezovan.
