20.06.12 - 10:00
Magnús Már Einarsson
Didier Drogba til Shanghai Shenhua (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Didier Drogba hefur skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við kínverska félagið Shanghai Shenhua.
Drogba kom til Chelsea frá Marseille árið 2004 en hann ákvað að gera ekki nýjan samning við enska félagið í vor.

,,Ég hef íhugað öll tilboð sem ég hef fengið undanfarnar vikur en ég tel að það sé rétta skrefið að fara til Shanghai Shenhua,\" sagði Drogba.
,,Ég hlakka til að takast á við nýja áskorun og upplifa nýja menningu. Ég er spenntur fyrir þróuninni í kínversku úrvalsdeildinni.\"
Drogba skoraði 157 mörk á ferli sínum hjá Chelsea en hann tryggði liðinu sigur í Meistaradeildinni í vor með síðustu spyrnu sinni í treyju félagsins.
Á ferli sínum hjá Chelsea varð Drogba einnig þrívegis enskur meistari auk þess sem hann vann enska bikarinn fjórum sinnum og deildabikarinn tvisvar.
Hjá Shanghai Shenhua hittir Drogba fyrir fyrrum liðsfélaga sinn Nicolas Anelka en einn af fyrstu leikjum þeirra saman hjá kínverska félaginu verður æfingaleikur gegn Manchester United þann 25. júlí.

Heimild: BBC