KA og Valur mætast í 9. umferð Pepsi Max-deildar karla klukkan 16:00 í dag en leikið er á Dalvík því Greifavöllurinn á Akureyri er ekki enn klár eftir veturinn. Byrjunarliðin eru klár og þau má sjá hér að neðan.
Smelltu hér fyrir beina textalýsingu
Smelltu hér fyrir beina textalýsingu
Á miðvikudaginn vann KA 0 - 2 sigur á ÍA á Akranesi. Hrannar Björn Steingrímsson var í þjálfarateyminu og fékk að líta rauða spjaldið og tekur því út leikbann í dag. Arnar Grétarsson þjálfari KA gerir tvær breytingar á liðinu frá leiknum. Daníel Hafsteinsson og Elfar Árni Aðalsteinsson koma inn fyrir Nökkva Þey Þórisson og bjarna Aðalsteinsson.
Valur vann 3 - 1 sigur á Breiðabliki í síðasta leik sínum á miðvikudaginn. Heimir Guðjónsson þjálfari þeirra gerir eina breytingu á sínu liði frá þeim leik. Orri Sigurður Ómarsson kemur inn fyrir Johannes Vall.
Byrjunarlið KA:
13. Steinþór Már Auðunsson (m)
3. Dusan Brkovic
4. Rodrigo Gomes Mateo
7. Daníel Hafsteinsson
8. Sebastiaan Brebels
9. Elfar Árni Aðalsteinsson
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
11. Ásgeir Sigurgeirsson (f)
16. Brynjar Ingi Bjarnason
26. Jonathan Hendrickx
27. Þorri Mar Þórisson
Byrjunarlið Vals:
1. Hannes Þór Halldórsson (m)
2. Birkir Már Sævarsson
5. Birkir Heimisson
6. Sebastian Hedlund
7. Haukur Páll Sigurðsson (f)
9. Patrick Pedersen
10. Kristinn Freyr Sigurðsson
13. Rasmus Christiansen
14. Guðmundur Andri Tryggvason
20. Orri Sigurður Ómarsson
33. Almarr Ormarsson
Leikir kvöldsins:
16:00 KA - Valur
17:00 Stjarnan - HK
17:00 Fylkir - ÍA
19:15 Breiðablik - FH
19:15 Keflavík - Leiknir
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir